top of page

Íslenski sjávarklasinn

  • Aug 9, 2024
  • 2 min read

Íslenski sjávarklasinn hefur frá stofnun veitt árlega einstaklingum, sem hafa eflt nýsköpun í tengslum við bláa hagkerfið og aukið samvinnu, sérstakar viðurkenningar. Af þessu tilefni þann 16. maí flutti ég þetta ávarp.


Góðan dag og til hamingju með daginn.  


Hlutverk og markmið Íslenska fæðuklasans rímar vel við áherslur sem birtast í nýsamþykkri stefnumótun á málefnasviði matvælaframleiðslunnar og þakka ég fyrir framtakið að stofnun klasans.

Í matvælastefnu til ársins 2040 er stefnt að því að stuðla að aukinni verðmætasköpun í matvælaframleiðslu hér á landi, tryggja fæðu- og matvælaöryggi og auka velferð fólks í sátt við umhverfi og náttúru.


Framtíðarsýnin er sú að Ísland verði í fremstu röð ríkja í gæðum framleiddra matvæla, matvælaframleiðsla verði kolefnishlutlaus og að rannsókna- og nýsköpunarstarf hafi mælanlega aukið sjálfbærni, fjölbreytni og verðmætasköpun matvælaframleiðslu.  


Markmið fæðuklasans er m.a. að styðja við frumkvöðlastarf og nýsköpun, auka samkeppnishæfni og verðmætasköpun og skapa möguleika á samstarfsverkefnum, að vera vettvangur samtals og samstarfs sem miðstöð ráðgjafar, greininga og stuðnings þar sem skapast tækifæri til að tengja aðila saman og nýta innlent og alþjóðlegt tengslanet og hugvit. 


Það hefur sýnt sig að uppbygging þekkingarklasa hefur reynst mikilvægur til að vinna gegn fólksfækkun víða út um land enda höfum við séð fjölda þeirra spretta upp á síðustu árum. Það er gríðarlega mikilvægt að slíkur vettvang og umhverfi sé til staðar fyrir íslenskan landbúnað og deginum ljósara að gnægð er af tækifærum sem glætt geta sveitir landsins nýju lífi. 

Rannsóknir, nýsköpun og hagnýting hugvits eru lykilþættir í því að auka sjálfbærni, fjölbreytni og verðmætasköpun í innlendri framleiðslu, sem jafnframt mun leiða til fjölgunar á eftirsóknarverðum og verðmætum störfum um land allt. Tækifærin eru fjölmörg enda búum við að góðum mannauð, verðmætum auðlindum og mikilli þekkingu á vettvangi nýsköpunar og sjálfbærni. Ég hlakka til að fylgjast með störfum klasans og verkefnum sem þar verða til. 


Við þurfum að virkja kraftinn sem býr í samhentum aðgerðum og sameiginlegu átaki, allt frá ræktun til neyslu, þar sem fæðuklasinn stuðlar að samstarfi milli frumkvöðla, fyrirtækja og fjármagns, ásamt því að byggja brýr og skapa tækifæri fyrir aðra starfandi klasa í landinu. 


Gangi ykkur og okkur öllum vel í þessum mikilvægu verkefnum.  

 
 
 

Comments


  • facebook
  • twitter
  • linkedin

©2023 BY BJARKEY OLSEN

bottom of page