Skólaslit TÁT og starfslok Magga
- 3 days ago
- 5 min read
Kæru gestir
Nú liggur fyrir að skólastjórinn okkar, Magnús Guðmundur Ólafsson, eða bara Maggi eins og við köllum hann, er að láta af störfum og eru þetta því hans síðustu skólaslit. Á þessum tímamótum er tilvalið að fara í stórum dráttum yfir starfsferil Magga og kannski ástæður þess hvers vegna hann hefur helgað starfsferil sinn tónlist.

Það má með sanni segja að Maggi hafi um áratugaskeið verið einn helsti burðarásinn í menningar- og tónlistarlífi Ólafsfjarðar sem og Fjallabyggðar og driffjöður í mörgum staðbundnum menningarviðburðum.
En ef ég fer aðeins í upphafið eins og stundum er sagt.
Maggi gekk í Barnaskóla Ólafsfjarðar og síðan í Gagnfræðaskólann. Þaðan lá leiðin í húsasmíði í nokkur ár við Iðnskóla Ólafsfjarðar. Síðar á lífsleiðinni fór Maggi í tónlistarnám á Akureyri hjá Tónlistarskóla Akureyrar og lærði hann þar á klassískan gítar hjá Kristjáni Edelstein. En það var mamma Magga, Hildur Magnúsdóttir, sem kenndi honum upprunalega á gítar og líklega sú sem kveikti neistann fyrir alvöru. Að öðru leiti er Maggi sjálfnema í tónlistinni og þótt gítarinn hafi verið hans aðal hljóðfæri þá eru þau fleiri sem Maggi getur gripið í.
En eins og með marga unga menn á þessum t´ma fór Maggi og var m.a. á grásleppuveiðum. En árið 1987 hætti Maggi á sjónum og fór að vinna hjá Tréver sem var alhliða húsasmíðafyrirtæki hér í Ólafsfirði og var þar á samningi.
En tónlistin togaði og fyrstu skrefin í kennslu tók Maggi við Tónskóla Ólafsfjarðar í hlutastarfi með trésmíðinni og að því kom að hann ákvað að einbeita sér alfarið að tónlist og kennslu. Þannig kenndi Maggi tónmennt við Barnaskóla Ólafsfjarðar, var kennari hjá Tónlistarskóla Akureyrar og Tónlistarskóla Eyjafjarðar í nokkur ár svo eitthvað sé nefnt.
Maggi varð síðan skólastjóri Tónskóla Ólafsfjarðar 2003 og síðan skólastjóri Tónskóla Fjallabyggðar 2010 með tilkomu Héðinsfjarðarganga og sameiningu skólastiga í Ólafsfirði og Siglufirði. Í ágúst 2016 var tekin sú ákvörðun að sameina Tónskóla Fjallabyggðar og Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar í einn skóla, Tónlistarskólann á Tröllaskaga. Við sameininguna varð til stór tónlistarskóli við utanverðan Eyjafjörð með þremur starfstöðvum sem hefur einnig séð um alla tónmenntakennslu í grunnskólunum á Tröllaskaga.
Ég held ég geti sagt fyrir okkur sem þekkjum til starfa Magga að hann geti verið gríðarlega stoltur af þátttöku sinni í að móta þennan skóla. Það er nefnilega svo að á þessum tæplega 40 árum í kennslu hefur margt breyst. Kennsluaðferðir, tækni og nálgun hefur tekið miklum framförum og hefur Maggi alltaf verið framarlega í að tileinka sér nýja tækni og hugsun og innleiða í skólastarfið. Enda pínu dellukall þegar kemur að tækjum og tólum.
Maggi hefur alla tíð verið listhneigður og það höfum við séð m.a. í gegnum smíði, myndlist, tónlist, söng, ljósmyndun, drónaflug eða matargerð.
Hann var potturinn og pannan í ýmsum hljómsveitum frá unga aldri. Hljómsveitin Kornflexbræður var sett saman ásamt félögum úr gagnfræðaskólanum og átti meira að segja sitt eigið þemalag. Bandið bauð m.a. upp á unglingadansleiki í Hringveri hér fram í sveit í Ólafsfirði og að sjálfsögðu voru sætaferðir eins og vera bar á alvöru böll. Fjölmargar aðrar merkilegar hljómsveitir litu dagsins ljós í Ólafsfirði, bæði í samstarfi við Siglfirðinga og aðra nærsveitarmenn. Svona til að nefna nokkrar:
· Þá starfaði hann sem söngvari og gítarleikari með hljómsveitinni Box á árunum 1990-1991.
· Maggi var gítarleikari og ljáði einnig söngrödd sína um nokkurt skeið í hinni kunnu hljómsveit Miðaldamönnum frá Siglufirði. Var hann hluti af Miðaldamönnum þegar sveitin gaf út lög árin 1992, 2005 og 2007.
· Venus var ein sem var í gangi árið 1983 og spilaði til dæmis í Sjallanum. Söngkonan var engin önnur en Inga Sæland, núverandi mennta- og barnamálaráðherra.
· Hljómsveitin Tvöföld áhrif starfaði frá 1996. Sveitin var sérstaklega áberandi í spilamennsku í kringum aldamótin og alveg fram til ársins 2005. Tvöföld áhrif kom víða fram og gaf út lög. Ég myndi segja að þeir hafi verið ”Ástarpungar” þess tíma.
· Í tengslum við Blúshátíðina, sem haldin var í 10 ár hér í Ólafsfirði og Maggi hélt lengi vel utan um, varð til hljómsveitin Tröllaskagahraðlestin. Hljómsveitin sú spilaði á ýmsum viðburðum og dansleikjum á Tröllaskaganum.
· Svona í restina má nefna Hljómsveitina Roðlaust og beinlaust sem var aðallega skipuð sjómönnum úr áhöfn frystitogarans Kleifabergs ÓF-2. Maggi átti stóran þátt í að móta og aðstoða þessa einstöku hljómsveit sem kom fram bæði hér heima og erlendis. Bandið gaf út nokkra geisladiska, birtist í sjónvarpi, fékk viðtal hjá Óla Palla á Rás2 og sérstök heimildarmynd var gerð um Roðlaust og beinlaust.
Eins og gefur að skilja eftir þessa upptalningu tók Maggi þátt í sveitaballamenningunni þegar hún var og hét, fór vítt og breitt um landið í all mörg ár ásamt félögum sínum í hljómsveitum til að spila fyrir dansi. Ferðasögurnar eru margar þar sem veður, færð og m.a. flugferðir til Grímseyjar slá taktinn.
Ég held það sé ekki ofsagt að Maggi hefur þannig í gegnum árin sett mark sitt á tónlistar- og menningarlífið og verið bæði frumkvöðull og þátttakandi í hinum ýmsum viðburðum.
Undanfarna áratugi hefur Maggi verið iðinn við að semja og spila eigin tónlist. Þó nokkur lög sem Maggi er höfundur að hafa verið gefin út, bæði lög sem hann hefur samið fyrir aðra og einnig lög sem hann hefur sjálfur gefið út. Þið sem ekki vitið þá á Maggi helling af óútgefnum lögum á lager.
Árið 2002 stofnaði hann Mogomusic ehf., sem er hljóðupptökustúdíó, hljóðtækjaleiga og bauð upp á fjölföldun á geisladiskum og DVD-diskum. Slíkt var nánast óþekkt á landsbyggðinni. Mogomusic hefur komið að mörgum viðburðum á Norðurlandi ásamt því að taka upp og gefa út tónlist.
Lagasmíðar hans og flutningur, oft í samstarfi við fjölskyldu sína og aðra tónlistarmenn af svæðinu, hafa sterka tengingu við menningu Tröllaskagans. Hann hefur sýnt fram á að hægt er að reka skapandi og metnaðarfulla tónlistarstarfsemi á landsbyggðinni.
Maggi er ekki þekktur fyrir að beina athyglinni að sjálfum sér eða að flagga því sem hann hefur áorkað í gegnum starfið sitt í tónskólanum og þess utan. Maggi hefur hvatt og aðstoðað annað tónlistarfólk á Tröllaskaganum, og þótt víðar væri leitað, að koma sér á framfæri. Sérstaklega hefur honum þótt mikilvægt að styðja við ungt tónlistarfólk, m.a. með því að gera þeim kleift að spila saman í hljómsveit og koma fram – einmitt eins og hann byrjaði sjálfur. Mér dettur nú í hug hinn landsþekkti Friðrik Ómar sem steig sín fyrstu skref hér í Tjarnarborg undir handleiðslu Magga.
Að stíga út af hinum hefðbundna vinnumarkaði eru tímamót sem ég fyrir hönd sveitarfélaganna vona svo sannarlega að þú njótir í faðmi fjölskyldunnar en það dylst engum að áhugamálin eru líka mörg og vonandi fáum við að heyra eitthvað af því sem enn er í skúffunni.
Kæri Maggi, okkar allra bestu þakkir fyrir allt þitt starf og mikilvæga framlag til tónlistar- og menningarlífs. Takk fyrir tryggð við sveitarfélögin og tónlistarlífið í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð það er ómetanlegt.






Comments