top of page

Ætla aftur í framboð

  • Writer: Bjarkey O Gunnarsdóttir
    Bjarkey O Gunnarsdóttir
  • Nov 4, 2020
  • 1 min read

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi ætlar að sækjast eftir fyrsta sæti á framboðslista flokksins við komandi alþingiskosningar. Hún skipaði síðast annað sæti flokksins en Steingrímur J. Sigfússon sem var í fyrsta sæti hefur ákveðið að hætta þingmennsku.


ree

Ég gef kost á mér í 1. sæti á lista VG í Norðausturkjördæmi. Ég hef verið þingmaður hreyfingarinnar frá árinu 2013 og þar áður kynntist ég starfi þingsins sem varamaður frá árinu 2004. Á þessu kjörtímabili hef ég verið formaður þingflokksins og þar áður varaformaður. Nú gef ég kost á mér til að leiða lista hreyfingarinnar í mínu kjördæmi. Ég hef víðtæka reynslu m.a. sem sveitarstjórnarfulltrúi, kennari og af uppbyggingu og rekstri fyrirtækja. Ég tel að reynsla mín af þingstörfunum og góð tengsl í kjördæminu komi sér vel í þeim stóru verkefnum sem framundan eru næstu misseri.

 
 
 

Comments


  • facebook
  • twitter
  • linkedin

©2023 BY BJARKEY OLSEN

bottom of page