top of page

Viðspyrnu aðgerðir

  • Nov 20, 2020
  • 1 min read


Á blaðamannafundi rétt í þessu kynnti ríkisstjórnin viðamiklar aðgerðir til að styðja fjölskyldur og fyrirtæki í landinu. Þær bætast ofan á þær fjöldamörgu aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til.

Eins og talað hefur verið um frá upphafi þessa faraldurs hefur verkefnið verið tvíþætt. Annars vegar að verja líf og heilsu landsmanna með markvissum sóttvarnaraðgerðum. Sá slagur gengur ágætlega þessa daganna, nýgengi smita eitt það lægsta í okkar heimshluta. Þá vekja jákvæðar fréttir af bóluefni von. Hins vegar að beita ríkisfjármálunum að fullum þunga til þess að verja afkomu fjölskyldna og skapa viðspyrnu fyrir fyrirtæki. Þegar hefur verið farið í aðgerðir upp á 120 milljarða á þessu ári. Saman gera þessar aðgerðir okkur kleift að dreifa birgðunum réttlátar, á fleiri bök og á lengri tíma.


Í þessum aðgerðarpakka eru fjölmargar almennar félagslegar aðgerðir sem sérstaklega eru ætlaðar að styðja atvinnuleitendur, lífeyrisþega og barnafjölskyldur en jafnframt eru sértækar aðgerðir sem ætlað er að styðja sérstaklega viðkvæma hópa. Umfangið er vel á áttunda milljarð króna, á þessu ári og hinu næsta. Þá er einnig aðgerðir til þess að skapa viðspyrnu fyrir fyrirtæki, heildaráhrif er áætlað að hámarki tuttugu milljarðar króna.


Með því að berja niður pestina, með því að fara eftir sóttvarnarreglum og að beita ríkisfjármálunum til þess að takast á við efnahagsáfallið af völdum hennar þá munum við komast í gegnum þetta saman.


 
 
 

Comments


  • facebook
  • twitter
  • linkedin

©2023 BY BJARKEY OLSEN

bottom of page