Vaxtalækkun er samvinna
- Bjarkey O Gunnarsdóttir

- Oct 15, 2019
- 2 min read

Eitt helsta markmið lífskjarasamninga, sem voru undirritaðir nú í vor, var að skapa skilyrði til vaxtalækkunar sem kæmi bæði heimilum og atvinnulífinu til góða. Þannig ætti vaxtalækkun samkvæmt samkomulaginu að auka ráðstöfunartekjur heimila með fasteignalán en jafnframt að stuðla að því að fólk sem væri úti á leigumarkaði fengi að njóta hennar í gegnum lægri húsaleigu. Þá ætti vaxtalækkunin að gera atvinnulífinu kleift að standa undir launahækkunum en að auki má segja að það gefi atvinnulífinu einnig möguleika að ráðast í arðbærar fjárfestingar, sem er sérlega mikilvægt nú þegar tekur að hægja á í hagkerfinu.
Það er því ánægjulegt að frá undirritun lífskjarasamninga hafi stýrivextir Seðlabankans lækkað úr 4,5% niður í 3,25% í nokkrum skrefum. Er það mikið gleðiefni að sú vaxtalækkun virðist vera að skila sér inn í vaxtastigið, en samkvæmt mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs hafa vextir á fasteignalánum lækkað um allt að 1,7 prósentustig á þessu tímabili. Þessi árangur hingað til sýnir mikilvægi öflugs þríhliða samtals og samvinnu verkalýðshreyfingar, atvinnurekenda og ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.
Þó er mikilvægt að fylgjast vel með að heimilin, hvort sem þau eru með fasteignalán eða á leigumarkaði, fái sannanlega að njóta ávinningsins sem hefur hlotist í gegnum bætt vaxtakjör á lánum eða lægri leigu. Lífskjarasamningar byggja á því að allir leggi sitt á vogaskálarnar til þess að byggja upp betra samfélag.
Stjórnvöld munu standa við sitt í samræmi við lífskjarasamninginn. Í fjármálafrumvarpinu var til dæmis kynnt nýtt þrepaskipt tekjuskattskerfi sem mun fyrst og fremst gagnast þeim sem lægstar hafa tekjurnar. Það er og jákvætt að breytingarnar á tekjuskattskerfinu í réttlætisátt verða innleiddar að fullu á tveimur árum en ekki þremur eins og stóð til í upphafi. Þá er lenging fæðingarorlofsins í tíu mánuði nú um áramótin og síðan eitt ár áramótin á eftir mikil framför. Þetta er ekki einungis mikið framfaraskref fyrir barnafólk heldur líka lykilatriði í baráttunni fyrir kynjajafnrétti. Eins og alltaf þá eru aukin lífsgæði samspil margra þátta og allt starf ríkisstjórnar miðar að því.






Comments