Um leiðsögumenn
- Bjarkey O Gunnarsdóttir

- Jun 1, 2021
- 2 min read

Nú er ferðaþjónustan að taka við sér á ný. Það er fagnaðarefni, það þýðir að við erum að koma okkur út úr erfiðum heimsfaraldri og lífið að færast í samt horf. Það þýðir líka að framundan er einstakt tækifæri til að endurhugsa heila atvinnugrein og bæta það sem betur mátti fara áður en heimsfaraldur skall hér á.
Ég sá í grein á dögunum að ferðamála- iðnaðar og nýsköpunarráðherra hafði skipað starfshóp um menntun og starfsþjálfun leiðsögumanna síðastliðið haust. Starfshópurinn fékk það verkefni að skoða hvort og þá hvernig hægt væri að styrkja og efla menntun og starfsþjálfun leiðsögumanna með áherslu á neytendavernd, náttúruvernd og öryggi.
Það er gríðarlega mikilvægt að þau sem starfa við leiðsögn fái viðunandi menntun og fræðslu og geti sýnt fram á þekkingu á landi og náttúrunni sem farið er um. Tungumálakunnátta er einnig afskaplega mikilvæg hér líkt og víða annars staðar. Enda lykilatriði að leiðsögumenn geti tekið við og miðlað upplýsingum á skýran hátt. Að mínu mati á þetta sérstaklega við á svæðum innan þjóðgarða og á friðlýstum svæðum þar sem gera ætti kröfu um aukna þekkingu og helst viðurkenningu til starfans.
Náttúran okkar er það sem dregur langflesta ferðamenn hingað til lands og það er okkur öllum í hag að það sé tryggt að vel sé um hana gengið.
Í ljósi þess sem ég hef áður sagt get ég ekki annað en hvatt til þess að hugað sé að lögverndun leiðsögumanna eða að tilskilin starfsréttindi séu grundvöllur þess að starfa sem leiðsögumaður. Öryggismál eru stór þáttur í ferðamennsku á Íslandi bæði öryggi ferðamanna og leiðsögumanna og við þurfum að tryggja að það sé sem allra best og það má gera með aukinni menntun og fræðslu.
Ég vil því hvetja ráðherrann til dáða í þessum efnum og styrkja menntun leiðsögumanna svo hér verði ferðaþjónusta í heimsklassa þar sem komið er fram við náttúruna af virðingu og að vernd hennar sé í forgangi.






Comments