top of page

Skattar nýtast okkur öllum í samneysluna

  • Jun 1, 2021
  • 2 min read

Það er mikilvægt að fólkið og fyrirtækin í landinu greiði sína skatta til samfélagsins. Staðan í dag er sú að fjármagnið er alþjóðlegt. Því skiptir öllu máli að regluverkið sé það líka og að alþjóðasamstarf á sviði skattaeftirlits sé öflugt og samstillt. Markmiðið er að það ríki meira gagnsæi í þessu og að fólk og fyrirtæki geti einfaldlega ekki lágmarkað skattgreiðslur sínar til samfélagsins eftir krókaleiðum og oftar en ekki í krafti auðs síns. Það veikir nefnilega löggjafann og lýðræðið þegar auðmagnið fær að ráða því beint eða óbeint hvernig skattalöggjöf viðkomandi ríkis sé háttað.


En sem betur fer hefur verið jákvæð þróun á þessu sviði síðastliðin ár bæði hérlendis og alþjóðlega. Ég vil sérstaklega nefna mikilvægi laga um skráningu raunverulegra eigenda, sem þingið samþykkti fyrir tveimur árum, og svo breytingar sem hafa átt sér stað á skattalöggjöf vegna CFC-félaga. BEPS samstarf á alþjóðvettvangi hefur einnig skipt miklu máli.


Hugmyndir sem hafa verið viðraðar meðal þjóðarleiðtoga um alþjóðlegt skattagólf á stærstu og arðbærustu fyrirtækin og skattlagningu stafræna hagkerfisins eru jafnframt athygliverðar. Það gefur tilefni til bjartsýni að sú umræða sé komin á skrið á alþjóðlegum vettvangi enda er þetta viðfangsefni sem þarf að fást við í gegnum alþjóðlegt samstarfi. En það skiptir öllu máli að orðum fylgi gjörðir og að gripið verði til skilvirkra aðgerða. Í þessari umræðu finnst mér líka tilefni til að nefna möguleikann á alþjóðlegum auðlegðarskatti sem myndi leggjast á auð þeirra allra efnuðustu í heiminum og gæti bæði aukið jöfnuð innan ríkja sem og milli þeirra.


En svo ættu auðvitað allir auðmenn heimsins að sjá sóma sinn í að skila sínu og gott betur til samfélagsins – án þess að endilega þurfi að kalla eftir því enda vel aflögufærir.

 
 
 

Comments


  • facebook
  • twitter
  • linkedin

©2023 BY BJARKEY OLSEN

bottom of page