Líforkuver á Dysnesi
- Aug 9, 2024
- 2 min read
Kæru gestir.

Í dag, hér í Hofi á Akureyri, eru ákveðin tímamót í framvindu þessa verkefnis og fyrir bættri umhverfisstjórnun á Íslandi. Við opnum formlega vef Líforku, liforka.is og af þessu tilefni vil ég óska öllum hluteigandi og okkur öllum til hamingju með áfangann en mikið verk er þó óunnið og margt í vændum!
Verkefnið liggur fyrir, það er ljóst að við verðum að tryggja viðunandi ráðstöfunarleið fyrir dýraleifar í áhættuflokki eitt. En eins og ykkur er flestum kunnugt um er sá farvegur ekki til staðar hér á landi í dag.
Frá árinu 2013 hefur Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) rekið mál gegn Íslandi vegna ófullnægjandi innviða til förgunar á aukaafurðum dýra í samræmi við ákvæði EES-löggjafar og brotalöm í opinberu eftirliti með aukaafurðum dýra, án þess að viðunandi lausn hafi fundist á málinu að mati ESA. Ísland var dæmt brotlegt með dómi EFTA dómstólsins í júlí 2022.
Alvarlegasta birtingarmynd þessa fyrir hagstjórn hér á landi væri að ESA myndi stöðva útflutning matvæla innan svæðsins, þar á meðal sjávarafurðir. Það eru því gríðarlegir hagsmunir undir.

Mikilvægi uppbyggingar líforkuvers og samræmds söfnunarkerfis fyrir dýrahræ skiptir einnig sköpum fyrir umhverfið og fyrir smitvarnir. Verkefnið tengist beint landsáætlun um útrýmingu riðu og mun tryggja öruggari meðhöndlun á úrgangi sem annars væri urðaður í trássi við lög. Þá er þess getið í uppfærðri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem kynnt var nú fyrr í sumar að hefja uppbyggingu nauðsynlegra innviða svo líforkuver á Dysnesi í Eyjafirði geti tekið við lífrænum úrgangi. Samkvæmt áætluninni er markmiðið að árið 2028 geti líforkuver tekið við 10. þúsund tonnum af lífrænu efni. Fyrir því mun ég berjast og stend heilshugar með því að líforkuver eigi að rísa hér vestan Akureyrar á Dysnesi í Hörgársveit og alveg ljóst í mínum huga að einungis verður reist ein slík stöð á landinu eins og er t.d. í Finnlandi.
Enda hafa landshlutasamtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra verið að undirbúa slíkt ja líklega í áratug að slík vinnsla verði reist hér í Eyjafirði með það að markmiði að koma úrgangi CHAT 1 í viðeigandi úrvinnslu eða förgun.
Eins og ég kom inná áðan er unnið að því að móta samræmt söfnunarkerfi fyrir dýraafurðir á landsvísu, í samvinnu við sveitarfélög og atvinnulíf að fyrirmynd Norðmanna og Finna. Þetta kerfi mun tryggja að dýraafurðir verði meðhöndlaðar á öruggan og viðurkenndan hátt, í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og umhverfisverndarstaðla. Líforkuverið í Dysnesi verður hjartað í þessu kerfi. Það er ekki aðeins endapunktur fyrir söfnun dýraafurða, heldur einnig dæmi um hvernig við getum breytt úrgangi í verðmæti; breytt því sem áður var vandamál í tækifæri fyrir orkuvinnslu og endurnýtingu í anda hringrásarhagkerfisins!

Ábyrgð okkar er mikil, en við vitum að með samstöðu og samvinnu getum við mætt þessum áskorunum og gert miklu betur en við höfum gert hingað til. Við erum að sýna heiminum að Ísland er leiðandi í umhverfismálum, ekki aðeins með orðum, heldur með gjörðum.
Í dag erum við stolt af því að koma að þessum áfanga og ég vil þakka öllum þeim sem hafa komið að þessu mikilvæga verkefni. Saman munum við halda áfram að vinna að því að tryggja hreint og öruggt umhverfi fyrir komandi kynslóðir.
Til hamingju með daginn.






Comments