Jafnt aðgengi
- Mar 12, 2021
- 1 min read

Í störfum þingsins í dag ræddi ég þetta.
Jafnt aðgengi fyrir alla einstaklinga samfélagsins eru mannréttindi og lykilþáttur í því að það fólk sem glímir við skerta hreyfigetu geti verið fullgildir þátttakendur í samfélaginu. Verkefnið Römpum upp Reykjavík er frábært dæmi um frumkvöðlastarf sem eykur lífsgæði fatlaðs fólks og minnir okkur öll á að standa saman. Bakhjarlar verkefnisins eru fjölmargir og koma úr öllum áttum.
Hvort sem um ræðir ríki, sveitarfélög, félagasamtök, fyrirtæki eða einstaklinga, þá sýnir þetta okkur svart á hvítu mikilvægi þess að við stöndum saman um þær breytingar sem við viljum sjá í nærsamfélagi okkar. Verkefnið, sem gengur út á það að auka aðgengi hreyfihamlaðs fólks að verslun og þjónustu í miðbæ Reykjavíkur, er innblásið en í senn sjálfsagt því að við eigum alltaf að huga að aðgengismálum og bjóða upp á besta mögulega aðgengi fyrir alla alls staðar.
Ég fagna þessu framtaki sem er löngu tímabært. Þetta er hins vegar ekki vandamál sem einskorðast við borgina, því miður. Allt of víða kemur hreyfihamlað fólk að luktum dyrum og nýtur ekki sama frelsis og aðrir til að velja sér þjónustu. Ég vona að þetta góða átak og sú athygli sem það hefur vakið verði til þess að önnur sveitarfélög taki sig á með góðum stuðningi allra þeirra sem ég tel að vilji gera samfélagið betra fyrir alla.
Virðulegi forseti. Forsprakki þessa verkefnis, Haraldur Þorleifsson, á skilið sérstakt hrós fyrir að vinna svo vel að úrbótum í sínu eigin nærsamfélagi og hann megum við öll taka okkur til fyrirmyndar.






Comments