top of page

Jafnréttismál

  • Dec 20, 2020
  • 2 min read

Á síðustu þingdögunum samþykkti Alþingi alls sex frumvörp sem eru gríðarstór skref í jafnréttismálum. Þau eru lenging fæðingarorlofs, heildarendurskoðun jafnréttislaga og þrjú mál um kynrænt sjálfræði.


Lenging fæðingarorlofsins í tólf mánuði með eins jafnri skiptingu og unnt var að ná skiptir sköpum fyrir barnafólk og ekki síður börnin sjálf. Fæðingarorlofskerfið á Íslandi er ekki einungis til að tryggja foreldrum og börnum samvistir á viðkvæmasta tíma í lífi barns, heldur er það einnig mikilvægt tól til að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Þetta er langþráð og mikilvægt.


Heildarendurskoðun jafnréttislaga og lög um stjórnsýslu jafnréttismála bæta alla umgjörð jafnréttismála á sviði stjórnsýslunnar, til dæmis kærunefnd jafnréttismála og starfa Jafnréttisstofu.

Þrjú mál um kynrænt sjálfræði stórbæta svo stöðu hinsegin fólks. Þau bæta stöðu Íslands á regnbogakortinu, sem mælir stöðu hinsegin fólks í heiminum, en þau skipta fyrst og fremst máli fyrir fólk. Þau skipta máli fyrir líðan og geðheilsu ungs fólks, en rannsóknir hafa sýnt að það er gríðarlega mikilvægt fyrir líðan þeirra að sjálfsmynd þeirra njóti viðurkenningar og skilnings. Það sama á við um fólk með kynhlutlausa skráningu og trans fólk, til dæmis þegar kemur að barneignum. Það skiptir máli að stjórnvöld sjái fólk og leyfi því að skilgreina sig sjálft. Lög um ódæmigerð kyneinkenni tryggja svo mikilvæga réttarbót fyrir börn sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni og aðstandendur þeirra.


Fimm af þessum sex málum sem ég hef rakið hér eru flutt af forsætisráðherra og það sýnir sig og sannar að það var mikið heillaskref að færa jafnréttismálin undir forystu Katrínar Jakobsdóttur.

Þau þrjú mál sem samþykkt voru um kynrænt sjálfræði er einmitt hægt að rekja til nýrra heildarlaga um kynrænt sjálfræði sem samþykkt voru á Alþingi í júní á síðasta ári. Vinna við það frumvarp hófst árið 2015 með óformlegum starfshópi skipuðum Kitty Anderson, formanni Intersex Ísland, Uglu Stefaníu Jónsdóttur, þáverandi varaformanns Trans Ísland og Svandísi Svavarsdóttur.

Það skiptir nefnilega máli hverjir stjórna. Jafnrétti er ein af grunnstoðum Vinstri grænna og við munum hér eftir sem hingað til halda vel utan um þessi mál.


 
 
 

Comments


  • facebook
  • twitter
  • linkedin

©2023 BY BJARKEY OLSEN

bottom of page