Sérstök umræða var um geðheilbrigðismál í þingingu í dag. Hér er mitt innslag.
Hæstvirtur forseti. Geðheilbrigðismál bera hér oft á góma. Þegar ég tók sæti á Alþingi í maí 2006 fjallaði ég einmitt um málaflokkinn, þá sem nú með áherslu á geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga.
Grunnurinn að góðri geðheilsu er lagður í æsku og mikilvægt að hlúa vel að börnum og fjölskyldum þeirra. Forvarnir hafa aukist og geðheilbrigði fengið verðugri sess innan skólakerfisins enda tilefnið ærið. Rannsóknir benda til að um 20% barna og unglinga glími við vanlíðan eða geðraskanir eins og kvíða eða þunglyndi og má ætla að hlutfallið sé enn hærra, því rannsóknir sýna sömuleiðis að börn segja ekki endilega frá því ef þeim líður illa. 7-10% barna eigi við geðheilsuvanda að stríða á hverjum tíma og þurfa á geðheilbrigðisþjónustu að halda.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, greinist um helmingur þeirra sem greinast með geðraskanir fyrir 14 ára aldur og á heimsvísu er það þannig að stór hluti þeirra fær ekki viðeigandi meðferð.
Vitundarvakning undanfarinna ára og efling grunn- og sérfræðiþjónustu við börn og unglinga með geðrænan vanda hefur sýnt okkur að betur má ef duga skal. Göngudeildar-, legudeildar- og vettvangsþjónusta hafa aukist, ekki síst hvað viðkemur samvinnu, fræðslu og ráðgjöf. Framhald þarf að vera á þessari þróun, því hún heyrir til mikilvægra framfara í meðferðar- og forvarnarvinnu á sviði barna og unglinga. En með fleiri tilvísunum náum við ekki utan um biðlista eins og best við vildum, og skortur er á meðferðarúrræðum öðrum en lyfjameðferðum, ekki síst í okkar dreifðari byggðum.
Framboð og aðgengi að úrræðum og þjónustu fyrir börn og unglinga sem glíma við geðheilsuvanda, sem og fyrir fjölskyldur þeirra, er misjafn eftir landsvæðum. Flest úrræði eru í boði á höfuðborgarsvæðinu þar sem mannfjöldinn er mestur.
Í síðustu viku fjallaði ég um fjarheilbrigðislausnir og hvernig mætti nýta þær til þess að veita m.a. frekari geðheilbrigðisþjónustu um land allt í takt við þá auknu þjónustu sem að komið var á á síðasta kjörtímabili í málaflokknum. Það er skýrt í mínum huga að við, í okkar dreifbýla landi þurfum að hugsa út fyrir boxið og nýta fjölbreyttar lausnir til að veita góða geðheilbrigðisþjónustu um land allt.
Comments