top of page

COVID - 19 og aðgerðir framundan

  • Writer: Bjarkey O Gunnarsdóttir
    Bjarkey O Gunnarsdóttir
  • Mar 12, 2020
  • 3 min read

Ræddi þetta í þinginu í dag.


ree

Við stöndum nú frammi fyrir hnattrænni ógn. Óvinurinn er ósýnilegur, lítt þekktur og óútreiknanlegur. Samt er það svo að það er óvinurinn sjálfur sem mun gefa þann höggstað á sér sem dugar okkur til sigurs. Við vitum að COVID-19 veiran þolir ekki sápuvþott. Við vitum einnig að með aðgerðum sem hægja á smiti getur heilbrigðisþjónusta okkar sinnt þeim sem eru í mestri hættu. Og við vitum að þegar ónæmi hefur verið byggt upp þá gengur faraldurinn yfir.

Við þurfum að muna að hér er um tvenns konar ógn að ræða: Yfirvofandi heilsufarsógn og svo efnahagshremmingar. Í báðum tilfellum er umfangið, tímalengdin og áhrifin enn óþekktar stærðir.

Fyrst og fremst er það heilsufarsógnin, baráttan við lítt þekkta lífveru. Aðferðir hennar eru að talsverðu leiti óþekktar þó að þekking aukist dag frá degi. Vísindamenn um heim allan keppast við að skilja þessa ógn betur. Við þurfum að verja viðkvæma hópa fyrir smitun líkt og sóttvarnarlæknir sagði í Kastljósi í gærkvöldi. Þar berum við öll mikla ábyrgð.

Við berum einnig ábyrgð á því að fara eftir tilmælum almannavarna. Þrífa hendur, vera heima ef við finnum fyrir einkennum og allt þetta sem við vitum að reynist vel. En við þurfum líka að taka upp símann og hringja í ættingja og vini sem kannski búa einir og hafa verið slæmir til heilsunnar. Spyrja þá hvernig þeim líði og hvort þá vanti eitthvað úr búðinni. Við megum ekki gleyma mennskunni og við getum ekki hætt að lifa lífinu.

Það skiptir máli hvaðan upplýsingar koma. Okkar færasta fólk er í framlínunni þessa dagana. Þau færa okkur upplýsingar eins fljótt og auðið er. Við skulum hlusta á almannavarnir, landlækni, sóttvarnarlækni, heilbrigðisstarfsfólkið okkar og helstu sérfræðinga úr þeirra hópi.

Svo er það efnahagurinn, en þar blasir við alvarlegt ástand. Það er gjörólíkt því áfalli sem við urðum fyrir í bankahruninu. Það eru skammtíma áhrifin af því að komum ferðamanna snarfækkar. Þau koma til með að verða mun meiri eftir síðasta útspil Bandaríkjamanna. Þó það sé erfitt að meta hversu mikil áhrifin eru, þá má líkja þessu við að fá loðnubrest í hverjum mánuði sem þetta ástand varir.. Þetta hefur verið a erfiður vetur og það líður eflaust mörgum eins og hann muni engan endi taka. En það eru ekki bara vondar fréttir. Útflutningur sjávarafurða jókst um 17 milljarða milli áranna 2018 og 2019. Þorskurinn skilaði 20% meiri verðmætum. Þetta skiptir máli.

En við Íslendingar kunnum að glíma við aflabrest. Við kunnum að glíma við óþekktar aðstæður. Við gerum það saman. Félagslegu kerfin okkar sem hafa verið byggð upp í gegnum árin og styrkt síðustu ár af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur munu skila sínu. Við njótum þess líka að ríkissjóður og þjóðarbúið standa vel og geta tekist á við áfall.

Mikilvægt fyrsta skref var kynnt í síðustu viku þegar aðilar vinnumarkaðarins og ríki náðu samkomulagi um það að tryggja öllum laun sem fara í sóttkví. Þegar launafólk axlar sameiginlega ábyrgð á því að lágmarka útbreiðslu veirunnar þá á það ekki að bitna á kjörum þess.

Ríkisstjórnin kynnti á þriðjudaginn fyrstu aðgerðir í efnahagsmálum. Þær snúa að því að verja hér efnahagslegan en jafnframt félagslegan stöðugleika. Því það er ekki hægt að aðskilja þessa tvo hluti. Enda snýst þetta ekki um fyrirtæki eða almenning. Vandamál fyrirtækja verða vandamál almennings og öfugt. Þess vegna er mikilvægt að reyna að koma í veg fyrir að fólki verði sagt upp með því að tryggja lífvænlegum fyrirtækjum lausafé. Það þarf að huga sérstaklega að ýmsum hópum sem hugsanlega falla milli skips og bryggju í mótvægisaðgerðum, eins og t.d. einyrkjum.

Landlæknir líkti baráttunni við coronu veiruna og þann sjúkdóm sem hún veldur sem stríði fyrir nokkrum dögum. Í þeirri baráttu breytast orrusturnar frá degi til dags og það getur verið ástæða til þess að banna og loka í dag og leyfa og opna hinn daginn. Það sem gert er þarf að byggja á grunni bestu þekkingar á hverjum tíma. Og það mun reyna mjög á okkur öll á næstu mánuðum að taka ákveðið og yfirvegað á málum.

Það má hafa um það efasemdir að ákvörðun Bandaríkjaforseta um að loka Bandaríkjunum í mánuð sé skynsamleg. Ég ætla mér að fagna því að utanríkisráðherra hafi nú þegar mótmælt þessari ákvörðun við sendiherra Bandaríkjanna. Mismunandi og misvísandi viðbrögð ríkisstjórna gætu gert illt verra í baráttunni við veiruna. Það er mikilvægt að muna að þetta er tímabundið ástand, jafnvel þó að á einhverjum tímapunkti gæti þetta virst vera heil eilífð. En hver veit, í baksýnisspeglinum gæti þetta tímabil hafa varað stutt. Sama hvernig fer munum við kljást við þetta saman. Heilbrigðisyfirvöld, stjórnvöld, almenningur og atvinnulíf. Við erum öll í sama báti og saman munum við gera það sem þarf.

 
 
 

Comments


  • facebook
  • twitter
  • linkedin

©2023 BY BJARKEY OLSEN

bottom of page