top of page

Annáll 2024

  • Dec 20, 2024
  • 3 min read

Updated: Dec 21, 2024

Árið hófst með hefðbundnum hætti með samveru fjölskyldunnar og almennri gleði. Jódís Jana fagnaði 25 ára afmælinu 11. janúar.


Við hjónakornin skelltum

okkur með Bændaferðum til Seefeld í Austurríki á gönguskíði sem var alveg frábært og frúin komst yfir brekkuóttann og renndi sér á milli þorpa yfir fjöll og firnindi eins og enginn væri morgundagurinn. Bóndinn var talsvert brattari og orðinn ansi flinkur á skautskíðum líka. Hjónin æfðu líka skíðaskotfimi en lítið fer af sögum um árangur af þeim æfingum. En gott að eiga paradís eins og Ólafsfjörð til að halda áfram að æfa sig á gönguskíðunum og jafnvel skotfiminni líka. Svo tóku hjónin þátt í Fjarðargöngunni og stóðu sig með prýði.


Rétt fyrir páskana skelltu systkinin, Bjarkey, Helga og Ásgeir sér til Spánar og gengu síðustu 115 km á Jakobsveginum fræga, frá Zarria til Santiago Comopstela. Þá höfðum við ekki verið svo lengi saman systkinin í á annan áratug. Vel heppnuð og dásamleg samvera.


Óvæntar breytingar urðu á högum frúarinnar og hún rétt komin heim á klakann þegar hún fékk það verkefni að vera matvælaráðherra. Stuttur og snarpur tími í því embætti en ótrúlega margt sem gerðist þó.  



Sjávarútvegssýningin í Barcelóna, samráðherrafundur Norðurlandanna í Svíþjóð, fundur með norska sjávarútvegsráðherranum í Þrándeimi. Var svo með færanlega skrifstofu víða um landið þar sem fólki gafst færi á að hitta ráðherrann og eiga beint samtal ásamt því að heimsækja flest allar starfsstöðvar ráðuneytisins um landið, sem eru ansi margar.




Var með bændafundi víða enda ástandið þar eftir hretið í sumarbyrjun erfitt. Hitti líka smábátasjómenn sem afhentu mér áskorun.


 




 







Ein af skemmtilegri heimsóknum voru drengir úr Hjallastefnuskóla komu í heimsókn í ráðuneytið og ræddu við ráðherra um hvalamál.

















Eftirminnilegt er sannarlega að hafa hitt Volodymyr Zelensky nú í haust.


Svo komu aðstoðarmenn mínir mér heldur betur á óvart þegar þau fengu Kjetil Krogstad, norska samfélagsmiðlastjörnu sem ég hef fylgt á instagram í langan tíma, til að hitta mig og áttum við frábæra stund saman.

Uppúr stendur samt frábært samstarf við fólkið í ráðuneytinu og þinginu og ótrúlega mikil reynsla safnaðist í lífspokann.


Sumarið var líka nýtt í útivist eftir fremsta megni og bóndinn hljóp eins og vindurinn m.a. í Hraunhlaupinu í Mývatnssveit og Fjarðarhlaupinu og hjónin skelltu sér svo saman í Fjögurra skóga hlaupið í júlí. Fórum í fyrsta sinn í  Landmannalaugar og Kerlingarfjöll þar sem við fengum frábært veður og upplifunin stórkostleg.














Bóndinn náði svo þeim merka áfanga að verða sextugur í september og var því fagnað í Hlíðarveginum með vinum og vandamönnum.


Af afkvæmum er það helst að frétta að Klara Mist, kláraði skipstjórnarnám og nýtir það að sjálfsögðu í hvalaskoðun á Dalvík ásamt að vera leiðsögumaður. Hún fjárfesti líka í einbýlishúsi í Ólafsfirði og bókstaflega gerði það fokhelt. Árið hefur farið í endurbætur þar sem þau feðginin hafa hjálpast að ásamt iðnaðarmönnum og hún stefnir á að flytja inn fyrir páska.




Feðgarnir Davíð og Tristan una sér vel við sitt í borginni og það gerir Jódís Jana líka. En það verða óneitanlega viðbrigði fyrir Jódísi þar sem hún hefur búið með mömmu sinni virka daga en

nú verða á því  breytingar.

Því skjótt skipast veður í lofti og pólitíkin lætur sjaldan að sér hæða. Við þessar breytingar ákvað frúin að stíga til hliðar og láta gott heita enda árin orðin tæplega 12 í fastri þingsetu og 20 frá því hún fyrst tók sæti á þingi.

Það er svo algerlega óráðið hvað tekur við hjá frúnni.




Bóndinn hins vegar er á kafi í sveitarstjórnarmálum og sér nú um hið pólitíska líf á heimilinu. Frúin unir sér bara við útivist með ferfætlinginum Toby sem kom í pössun til okkar í ágúst og er ætlunin að hann verði fram í maí.


Svona af því bóndinn náði þeim áfanga að verða sextugur þá fékk hann ferð á Anfield í afmælisgjöf og vildi endilega hafa frúna með sér. Frúnni fannst gott að lenda í Manchester og ekki var nú verra að bæði liðin unnu ágæta sigra þennan sunnudag.







Hið árlega jólakvöld var haldið í desember og bóndinn mikið að brasa í kringum það að vanda. Veðrið eins jólalegt og hugsast gat og allir í góðu skapi og nutu þess sem uppá var boðið.
















Nú er verið að undirbúa jólin og allur bakstur búinn en eins og þið vitið fer talsverður tími í að skreyta innan húss og utandyra í Hlíðarvegi 71.


Hér eru annars öll við góða heilsu og gera ráð fyrir að árið 2025 verði ár ævintýra og tækifæra.

Jólakveðja til ykkar allra með ósk um heill og hamingju ykkur öllum til handa frá fjölskyldunni Hlíðarvegi 71, Jóló-firði.

 
 
 

Comments


  • facebook
  • twitter
  • linkedin

©2023 BY BJARKEY OLSEN

bottom of page